Athyglisverðir staðir eru margir á því svæði sem Borgarbyggð nær yfir, allt frá Haffjarðará í vestri til Skarðsheiðar í suðri, en sveitarfélagið er um 4.850 ferkílómetrar að stærð.
Innan Borgarbyggðar eru eftirtalin svæði talin frá vestri: Kolbeinsstaðahreppur, Hraunhreppur, Álftaneshreppur, Borgarhreppur, Borgarnes, Norðurárdalur, Stafholtstungur, Þverárhlíð, Hvítársíða, Hálsasveit, Reykholtsdalur, Flókadalur, Lundarreykjadalur, Bæjarsveit og Andakíll. Hér skal þess freistað að nefna nokkra athyglisverða staði, en um frekari upplýsingar vísast á vef upplýsinga- og kynningamiðstöðvar Vesturlands í Borgarnesi: www.ukv.is
Eldborg formfagurt eldfjall sem er í Kolbeinsstaðahreppi hinum forna og er gengið á hana frá Snorrastöðum, sjá www.snorrastadir.com. Fjall eins og Eldborg myndast þegar þunnfljótandi kvika kemur upp um kringlótt gosop í fremur stuttum gosum og án kvikustrókavirkni (flæðigos). Umhverfis gosopið hlaðast upp brattir gígveggir úr hraunslettum.
Hítardalur er forn sögustaður og þar er einstök náttúrufegurð. Borg á Mýrum er rétt við Borgarnes, þar bjó Skalla-Grímur Kveldúlfsson og síðar Egill sonur hans. Á Borg er falleg sögufræg kirkja og minnismerkið „Sonatorrek“ eftir Ásmund Sveinsson.
Borgarnes byggðist fyrst á 19. öld og er í fornum sögum kallað Digranes. Bæjarstæðið þykir einkar fallegt, þar sem skiptast á klapparholt og mýraflákar. Nú búa um 2000 manns í Borgarnesi og fer sú tala ört vaxandi. Í bænum eru nokkrir þekktir sögustaðir úr Egilssögu, s.s. Sandvík, haugur skalla-Gríms og Brákarsund. Hér starfa Landnámssetur og Brúðulistasafnið Brúðuheimar.
Rétt norðan við Bifröst í Norðurárdal er tveir gígar, Stóra- og Litla Grábrók. Sú litla hvarf að mestu við framkvæmdir en sú stóra rís fagurformuð fast við þjóðveginn. Þriðji gígurinn er vestar og heitir Grábrókarfell. Hraun úr gígunum þekur stóran hluta Norðurárdals. Þetta er sérlega fallegt útivistarsvæði.
Reykholt í Borgarfirði er frægur sögustaður þar sem Snorri Sturluson bjó og var hálshöggvinn árið 1241. Þar er nú fræðastofnunin Snorrastofa sem helguð er minningu Snorra. Í Reykholti er margt fleira að sjá, s.s. ný og reisuleg kirkja, en gamla kirkjan á staðnum stendur enn og er hefur verið gerð upp og opnuð almenningi sem safn. Á staðnum er rekið heilsárshótel.
Húsafell er útivistarperla í nálægð Eiríksjökuls og Langjökuls. Þar er golfvöllur og sundlaug auk annarrar þjónustu við ferðamenn (www.husafell.is). Frá Húsafelli er ekki langt í Hraunfossa og Barnafoss auk hellanna Surtshellis og Víðgelmis, en í þann síðarnefnda er farið frá bænum Fljótstungu í Hvítársíðu. Páll Guðmundsson á Húsafelli er þjóðkunnur orðin fyrir listsköpun sína og hugmyndaauðgi. Hann notar umhverfi Húsafells mikið í list sinni.
Á Hvanneyri er gömul landnámsjörð. Þar hefur verið starfræktur búnaðarskóli allar götur síðan 1889, og þar hefur Landbúnaðarháskóli Íslands nú aðalstarfsstöð sína. Þar er einnig rekið Ullarsel og Landbúnaðarsafn, hvort tveggja mjög vinsælt af gestum og gangandi (www.ull.is og www.landbunaðarsafn.is).
Í sveitarfélaginu eru margar þekktar laxveiðiár, s.s. Haffjarðará, Hítará, Langá, Norðurá, Þverá, Hvítá og Grímsá svo nokkrar séu nefndar.