Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
22. febrúar 2012 11:49

Bjarki íþróttamaður Borgarfjarðar 2011

Á íþróttahátíð Ungmennasambands Borgarfjarðar sem fór fram síðastliðinn laugardag var afreksfólk síðasta árs heiðrað og tilkynnt um val á Íþróttamanni Borgarfjarðar. UMSB valdi að þessu sinni Bjarka Pétursson kylfing úr Golfklúbbi Borgarness sem Íþróttamann Borgarfjarðar og er þetta annað árið í röð sem Bjarki hlýtur nafnbótina. Bjarki sem fæddur er árið 1994 er með efnilegustu kylfingum landsins. Hann varð Íslandsmeistari unglinga 17-18 ára í höggleik og holukeppni á liðnu ári auk þess sem hann varð klúbbmeistari Golfklúbbsins.  

Bjarki keppti fyrir Íslands hönd á Duke of York unglingamóti hjá Royal Liverpool klúbbnum í Bretlandi á síðasta ári. Á mótinu leika landsmeistarar frá 31 landi og hafnaði Bjarki í 16. sæti. 
Aðrir sem voru ofarlega í tilnefningum til Íþróttamanns Borgarfjarðar voru þau Tinna Kristín Finnbogadóttir fyrir skák, Birgir Þór Sverrisson fyrir körfubolta, Guðmunda Ólöf Jónsdóttir fyrir sund og Davíð Guðmundsson fyrir körfubolta.