Foreldrafélag

Við leikskólann er starfandi foreldrarfélag. Tilgangur og markmið félagsins er að standa vörð um hagsmuni og velferð barnanna og stuðla að auknu samstarfi foreldra og starfsmanna leikskólans. Foreldrar greiða gjald í félagssjóð. Sjóðurinn er notaður til að lífga upp á leikskólastarfið t.d með leiksýningum, jólaballi og ýmsum ferðum. Upphæðin er ákveðin á aðalfundi.

 
 

 

Stjórn foreldrafélagsins

Ragna S. Óskarsdóttir formaður
Hulda Hrönn Sigurðardóttir gjaldkeri
Dagur Andrésson ritari.

f.h. leikskóla Hraundís Guðmundsdóttir


Markmið með foreldrasamstarfi okkar er:

    - að rækta samvinnu og samskipti leikskólans og heimilanna.

- að veita foreldrum upplýsingar um starfsemi leikskólans.

                                                      - að stuðla að þátttöku foreldra í starfi skólans.

 

Lög foreldrafélags Hnoðrabóls

   1. Félagið heitir Foreldrafélag Hnoðrabóls. Heimili þess og varnaþing er í Reykholtsdal í Borgarfirði.

                      2. Tilgangur félagsins er að vera stuðnings og verndaraðili Hnoðrabóls.

              3. Félagar eru allir foreldrar og forráðamenn barna sem eru í dagvist, svo og allir starfsmenn við leikskólann.

                     4. Í stjórn eiga sæti formaður, gjaldkeri og ritari. Stjórnin skiptir með sér verkum .

                     5. Aðalfundur skal halda fyrir 31. okt. ár hvert og kjörtímabil stjórnar skal vera á milli aðalfunda.

Á aðalfundi skal gera grein fyrir starfi félagsins og kjósa  í stjórn. Lögum félagsins verða aðeins breytt á aðalfundi og einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum á fundum félagsins.
 

    6. Samþykktir þessa öðlast þegar gildi. Þannig samþykkt á aðalfundi Foreldrafélagsins þann 06.10.1998.

 
 
 

Aftur á Forsíðu