Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
4. febrúar 2012

Útnefningu íþróttamanns ársins frestað

Vegna óviðráðanlegra orsaka verður útnefningu íþróttamanns ársins hjá Borgarbyggð, sem fara átti fram sunnudaginn 5. febrúar, frestað.

 

Ný tímasetning verður kynnt á allra næstu dögum.

 

Tómstundanefnd Borgarbyggðar

 

 

2. febrúar 2012

Bækur Guðmundar Hjartarsonar

Nýverið barst Héraðsbókasafni Borgarfjarðar myndarleg gjöf. Um er að ræða bækur úr eigu Guðmundar Hjartarsonar fyrrverandi seðlabankastjóra, en hann lést fyrir nokkrum árum og ánafnaði Safnahúsi bókasafni sínu.  Þar er margt góðra bóka og er gjöfin því talsverður styrkur fyrir héraðsbókasafnið. Guðmundur var fæddur á Litla-fjalli í Borgarhreppi en fór til Reykjavíkur 25 ára gamall og bjó þar eftir það. Hann hélt þó alltaf miklu sambandi við Borgarfjörðinn og átti sterkar taugar þangað.  Rausnargjöf Guðmundar er afar vel þegin og mun koma að góðum notum fyrir gesti bókasafnsins. 

2. febrúar 2012

Skák og mát í sundlauginni

Í síðustu viku, fimmtudaginn 26. janúar var skákdagurinn á Íslandi og teflt var um allt land til heiðurs Friðriki Ólafssyni stórmeistara. Í tilefni dagsins var sundlaugin í Borgarnesi skákvædd þegar Tinna Kristín Finnbogadóttir og Jóhann Óli Eiðsson afhendu Páli Brynjarssyni sveitarstjóra tafl frá Skákakademíunni. Tinna og Jóhann Óli vígðu taflið í heita pottinum að viðstöddum Helga Ólafssyni stórmeistara. Helgi tefldi svo fjöltefli í Hyrnutorgi síðar um daginn. Á myndinni má sjá Pál, Tinnu, Jóhann Óla og Helga í heita pottinum.

26. janúar 2012

Söngkeppnin fer í Óðal

Söngkeppni félagsmiðstöðvanna á Vesturlandi verður ekki haldin í Hjálmakletti eins og auglýst var. Keppnin hefur verið færð yfir í félagsmiðstöðina Óðal og hefst þar kl. 19.00 í kvöld.

26. janúar 2012

Þulur - samstarfsverkefni Tónlistarskóla og Safnahúss

Safnahús og Tónlistarskóli Borgarfjarðar hafa tekið saman höndum um tilraunaverkefni til að vekja athygli á þuluforminu og hvetja til sköpunar á grundvelli þess. Verkefnið er unnið með aðstoð Árnastofnunar sem leggur til upptökur af eldri þulum sem varðveist hafa í munnlegri geymd, kveðnar af borgfirskum konum. Um leið er skáldkonunnar Guðrúnar Jóhannsdóttur frá Sveinatungu minnst með því að úrval af þulum hennar er notað sem námsefni fyrir hluta nemenda skólans á vorönn 2012.