Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Þjónusta við fatlaða

 

 

Nú hefur félagsþjónusta Borgarbyggðar tekið yfir þá  þjónustu sem Svæðisskrifstofa fatlaðra á Vesturlandi hefur veitt fötluðu fólki og fjölskyldum þess.

 

Rétt er að undirstrika að sú þjónusta sem var fyrir hendi breyttist ekki að öðru leyti en því, að í stað þess að leita til Svæðisskrifstofu snýr fólk  sér til félagsþjónustunnar. Þeir sem hingað til hafa sótt þjónustu  bæði til Svæðisskrifstofu og sveitarfélags geta nú sótt þjónustuna  á einn stað sem ætti að verða til einföldunar;  færri koma að málum og þjónustan verði þannig  markvissari.

 

Vesturland er eitt þjónustusvæði  en framkvæmd þjónustunnar verður í höndum;  Félagsþjónustu Akraness,  sem þjónustar einnig Hvalfjarðarsveit;  Félagsþjónustu Borgarbyggðar,  sem þjónustar einnig Dalabyggð og Skorradal  og Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, sem þjónustar  allt Snæfellsnes. 

 

Þjónustan er sameiginleg fyrir allt svæðið þannig að íbúar á öllu svæðinu njóta sama réttar til þjónustu  í t.d. skammtímavistunum  í Holti og Gufuskálum, Fjöliðjunni á Akranesi og Borgarnesi og búsetuúrræðum óháð því á hvaða svæði eða í hvaða sveitarfélagi þeir búa.

 

Þjónustuaðili Borgfirðinga er félagsþjónusta Borgarbyggðar  Ráðhúsinu Borgarnesi S:  433 7100, sem veitir fúslega allar frekari upplýsingar

Félagsþjónustan stefnir að því  að því að sinna þessu verkefni af alúð og metnaði og treystir á aðhald og leiðbeiningar frá notendum  til að svo geti orðið.