Reglur um akstursstyrki vegna íþróttaæfinga
Reglur um akstursstyrki barna og unglinga sem stunda reglulegar íþróttaæfingar á vegum félagasamtaka í Borgarbyggð.
Um er að ræða skipulagðar íþróttaæfingar á vegum félagasamtaka í Borgarbyggð en ekki á vegum einstaklinga eða utanaðkomandi aðila.
Markmiðið með þessum reglum er að stuðla að jöfnun aðstöðu barna og unglinga í Borgarbyggð.
- Styrkir eru greiddir vegna barna/unglinga á aldrinum 6-16 ára er hafa átt lögheimili í Borgarbyggð s.l. 4 mánuði áður en umsókn er skilað inn.
- Til að eiga rétt á styrk þarf að framvísa á skrifstofu Borgarbyggðar: Akstursdagbók.
Kvittun fyrir æfingagjöldum.
Staðfestingu frá íþróttafélagi og/eða deild, þar sem fram kemur að æfingar eru stundaðar í a.m.k. 12 skipti yfir árið.
- Aðeins er greiddur einn styrkur á heimili á ári, óháð fjölda barna.
- Styrkirnir ná til skipulagðra íþróttaæfinga sem stundaðar eru innan sveitarfélagsins.
- Ekki er greitt til íbúa sem búa innan 25 km (aðra leið) frá æfingastað.
- Upphæð styrks fyrir íbúa sem búa í 25 km fjarlægð eða meira er kr. 25.000 á ári.
- Styrkir eru greiddir út einu sinni á ári, í desember, að undangenginni auglýsingu frá Borgarbyggð þar um.
- Gera skal ráð fyrir fjárhæð til greiðslu styrkjanna á fjárhagsáætlun málaflokksins íþrótta- og æskulýðsmál.
- Tómstundanefnd er ábyrg fyrir framkvæmd og endurskoðun þessara reglna.
Endurskoðað og samþykkt á fundi sveitarstjórnar 18. nóv. 2010
Umsóknareyðublað