Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Stefnumótun í tómstundamálum 2011

 

Drög að stefnumótun má finna hér.

 

Tómstundanefnd Borgarbyggðar vinnur nú að mótun stefnu í tómstundamálum í sveitarfélaginu.

 

Tómstundanefnd leggur mikla áherslu á að fá sem flesta til liðs við sig til að móta stefnu í þessum málaflokki, sem varðar okkur öll, og hefur því óskað eftir þátttöku allra þeirra sem láta sig tómstundamál varða.

 

Upphaf stefnumótunarvinnunnar fór fram á opnum íbúafundi fimmtudaginn 1. september. Þangað mætti fjöldi manns sem tók þátt í að ákveða hvað væri mikilvægt og hvað þarfnaðist umræðu í málaflokknum.

 

Í framhaldi af fundinum voru allar hugmyndir og tillögur sem fram komu teknar saman í eitt skjal, sem er nú birt hér á síðunni og óskað eftir athugasemdum, tillögum, vangaveltum og hverju því sem fólki kann að detta í hug við lesturinn. Skjalið verður opið hér í 10 daga, til og með mánudagsins 26. september.

 

Þá verður skjalið tekið út og tómstundanefnd fer yfir þær tillögur sem borist hafa og leggur drög að textaskjali sem aftur mun birtast hér á síðunni mánudaginn 10. október. Aftur er óskað eftir athugasemdum og tillögum og opið verður fyrir þær í 10 daga, til og með 20. október.

 

Eftir þann tíma mun tómstundanefnd leggja lokahönd á stefnumótunarskjalið, sem fer svo sína leið í gegnum stjórnsýsluna. Ferlinu lýkur svo með kynningarfundi sem áætlað er að halda um eða eftir miðjan nóvember.

 

Skjalið má nálgast hér. [Skjalið hefur verði aftengt]

 

Athugasemdir, tillögur, vangaveltur og hvaðeina óskast sent til starfsmanns stefnumótunarhópsins; Silju Steingrímsdóttur, á netfangið silja@borgarbyggd.is.

 

Einnig er hægt að taka þátt í umræðum á facebook síðu verkefnisins:  (er í smíðum)