Veitur
Vatnsveita Borgarness
Neysluvatn fyrir Borgarnes og nágrenni kemur úr Grábrókarhrauni í Norðurárdal.
Áður fyrr var neysluvatn fyrir Borgarnes tekið frá Seleyri, sunnan megin við Borgarfjarðarbrú, úr þremur lindum við rætur Hafnarfjalls.
Vatn til annars en neyslu s.s. til bílaþvotta var tekið frá vatnsbólum í giljum Hafnarfjalls svokölluðum eystra og vestara gili.
Vatnsveita Álftaneshrepps
Sveitarfélagið sér um vatnsveitu Álftaneshrepps. Vatnsbólið er í Hraundalshrauni og um er að ræða uppsprettuvatn. Veitan þjónar allflestum bæjum í Álftaneshreppi og allnokkrum í Borgarhreppi og Hraunhreppi. Veitan tengist öðru vatnsbóli við Svarfhólsmúla sem ætlað er fyrst og fremst fyrir Hraunhrepp.
Hitaveita
Um hitveitu í Borgarnesi sér Orkuveitan í Reykjavík. Orkuveitan hefur útibú í Borgarnesi við Sólbakka 13-15. Sveitarfélagið hefur ekki haft afskipti af öðrum hitveitum í sveitarfélaginu fyrir utan lítinn eignarhlut í Hitaveitu Norðdælinga.
Rafmagn
Rarik sér um rafkerfi á Vesturlandi þar á meðal í Borgarbyggð. Svæðisútibú Rarik í Borgarbyggð er að Sólbakka 1 í Borgarnesi.