Átakshópur um atvinnumál í Borgarbyggð boðar til opins fundar með Fjárfestingastofu á morgun, fimmtudaginn 10. desember kl. 12:00 í Menntaskóla Borgarfjarðar. Þar mun Þórður Hilmarsson framkvæmdastjóri Fjárfestingastofu segja frá möguleikum í fjárfestingum erlendra aðila, hvað þurfi til og hvað Fjárfestingastofa er að skoða um þessar mundir. Spurt verður hvort það sé eitthvað sem er áhugavert fyrir Borgarfjörð og íbúa Borgarbyggðar. Hægt verður að kaupa súpu og brauð á staðnum.