Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 216

Dags. 5.1.2012

Fimmtudaginn 5. janúar 2012  kom byggðarráð Borgarbyggðar saman til fundar  kl. 8:00 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Mætt voru:

        Aðalfulltrúar:             Bjarki Þorsteinsson

                                        Ingibjörg Daníelsdóttir

                                       Geirlaug Jóhannsdóttir

        Áheyrnarfulltrúi:       Sigríður G. Bjarnadóttir

        Sveitarstjóri:            Páll S. Brynjarsson

        Skrifstofustjóri:        Eiríkur Ólafsson sem ritaði fundargerð

 

Eftirfarandi var tekið fyrir:

 

1.         Orkuveita Reykjavíkur

Framlagt fundarboð á eigendafund í Orkuveitu Reykjavíkur sem haldinn verður 05. janúar 2012. 

 

2.         Grábrókarveita og Vatnsveita Bæjarsveitar

Framlagt minnisblað frá sveitarstjóra um Grábrókarveitu og Vatnsveitu Bæjarsveitar.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að skrifa Orkuveita Reykjavíkur og fara fram á að stöðug gæði og hreinleiki vatns úr Grábrókarveitu verið tryggð.

Samþykkt var að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga varðandi Vatnsveitu Bæjarsveitar og aðrar vatnsveitur í Borgarbyggð og leggja fyrir byggðarráð.     

 

3.         Tónlistarskóli Borgarfjarðar

Framlagt bréf frá Foreldraráði Tónlistarskóla Borgarfjarðar þar sem mótmælt er fyrirhuguðum hækkunum á skólagjöldum og niðurskurði á tímafjölda við skólann. 

Vísað til fræðslunefndar.

Rætt um gjaldskrá mötuneyta í grunnskólum Borgarbyggðar.

 

4.         Hvítárbakki

Framlagt bréf frá Barnaverndarstofu vegna húsaleigu á Hvítárbakka.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að láta lögfræðing höfða innheimtumál á hendur Barnaverndarstofu vegna ógreiddrar húsaleigu. 

 

5.         Þjónustukönnun Capacent

Framlögð þjónustukönnun Capacent, þar sem íbúar í Borgarbyggð ásamt íbúum 14 annarra sveitarfélaga svöruðu spurningum um ýmsa þjónustuþætti í sínum sveitarfélögum.

Samþykkt að vísa könnuninni til umfjöllunar í fagnefndum sveitarfélagsins og óskað eftir að Capacent kynni könnunina fyrir sveitarstjórn og nefndum. 

 

6.         Löggæslumál í Borgarbyggð

Á fundinn mættu Stefán Skarphéðinsson sýslumaður og  Theodór Þórðarson yfirlögregluþjónn til viðræðna um löggæslu í Borgarbyggð.

Samþykkt var að óska eftir upplýsingum um þróun fjárveitinga til lögregluembættisins í Borgarnesi undanfarin fjögur ár.

 

7.         Almenningssamgöngur

Framlagður samningur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og Vegagerðarinnar um umsjón almenningssamgangna á Vesturlandi.

Byggðarráð samþykkti samninginn.

Byggðarráð skorar á SSV að kynna breytingar sem mest. 

 

8.         Efling sveitarstjórnarstigsins á Vesturlandi

Framlögð fundargerð frá fundi í vinnuhópi um eflingu sveitarstjórnarstigsins á Vesturlandi sem haldinn var 19.12.'11.

 

9.         Kostnaður við skipulagsmál

Framlagt yfirlit yfir kostnað Borgarbyggðar vegna vinnu við aðalskipulag og deiliskipulag á árinu 2011.

Byggðarráð óskar eftir heildaryfirliti um kostnað við gerð aðalskipulags Borgarbyggðar og samanburð við kostnað annarra sveitarfélaga við aðalskipulagsgerð.

 

10.       Stofnun lóðar

Framlagt erindi frá Kristínu Helgadóttir þar sem hún óskar eftir að stofna 7,17 hektara lóð undir sumarhús úr landi Hrossastapa í Borgarbyggð.

Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar.

 

11        Starfsmannamál

Rætt um starfsmannmál.

 

12.       Stjórnendanám

Framlögð kynning á námi fyrir stjórnendur hjá sveitarfélögum, en Háskólinn á Bifröst mun fara af stað með námið í byrjun febrúar.

Geirlaug vék af fundi meðan þessi liður var ræddur.

 

13.       Netalagnir við Borgarnes

Framlagt erindi frá Hreggviði Hreggviðssyni dags. 02.01.'12 vegna netalagna við Borgarnes.

Sveitarstjóra var falið að vinna áfram að málinu.

 

14.       Þriggja ára áætlun

Rætt um þriggja ára áætlun Borgarbyggðar 2013 - 2015.

 

15.       Framlögð mál

a.         Bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga dags. 16.12.'11 vegna skólaaksturs.

b.         Fundargerð stjórnar SSV dags. 14.12.'11.

c.         Fundargerð stjórnar Sorpurðunar Vesturlands hf. dags. 16.12.'11.

 

 

Fleira ekki gert.

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.

 

Fundi slitið kl. 12,00 



Til baka