Fólkvangurinn Einkunnir, fundur nr. 36
Dags. 13.12.2011
Umsjónarnefnd fólkvangsins Einkunna
36. fundargerð
Fundur var haldinn hjá umsjónarnefnd fólkvangsins í Einkunnum
13. desember 2011 kl. 14:00 í ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi.
Mættir voru:
Nefndarmenn:
Hilmar Már Arason, formaður
Sigríður Bjarnadóttir
Steinunn Pálsdóttir
Starfsmaður nefndarinnar:
Björg Gunnarsdóttir, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi, ritaði fundargerð.
- Fjárhagsáætlun 2012
Lögð fram samþykkt áætlun fyrir 2012 og yfirlit yfir fjárhag ársins 2011.
- Jólatrjáasala úr Einkunnum.
Lögð fram viðmiðunargjaldskrá frá Skógræktarfélagi Íslands.
Jólatrjáasala Björgunarsveitarinnar Brák sem verið hefur í Daníelslundi undan farin ár verður í Einkunnum þetta árið.
- Deiliskipulag.
Nefndin ræddi stöðu deiliskipulags Einkunna eftir að vinna hófst við það aftur.
- Salernisaðstaða í Einkunnum.
Lagt fram bréf, dagsett 21. nóvember 2011, frá umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa til byggðraráðs með beiðni um fjárframlag á framkvæmdaáæltun vegna nýframkvæmda í Einkunnum.
Nefndin áætlar að vinna eftir því sem fjármagn leyfir að uppbyggingu salernisaðstöðu í Einkunnum.
5. Styrkumsóknir.
Nefndin hefur sótt um í einn sjóð nú í haust og bíður svars.
Einnig áætlar hún að sækja um styrk fyrir salernisaðstöðunni til
Ferðamálastofu.
- Fyrirhuguð verkefni á næsta ári.
Unnið veður að eftirfarandi verkefnum á næsta ár:
· Áframhaldandi vinna við salernisaðstöðu.
· Viðgerð á bryggjunni.
· Grisjun.
· Viðhald stíga.
· Slepping seiða í Álatjörn.
- Önnur mál.
a) Atburðir í Einkunnum.
Nefndin ræddi að setja upp dagskrá á heimasíðunni fyrir
næsta ár. Þar sem settir væru inn m.a. eftirfarandi
dagskrárliðir.
· Dagur villtra blóma
· Dagur umhverfisins
· Dagur náttúrunnar
· Sveppanámskeið
· Gönguferðir
Fundi slitið kl. 14:50.
Til baka