Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 163

Dags. 26.8.2010

FUNDARGERÐ

 

163. byggðarráðsfundur

 

Fimmtudaginn 26. ágúst 2010 kom byggðarráð Borgarbyggðar saman til fundar kl. 8:00 að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Mættir voru:

Aðalfulltrúar:                 Bjarki Þorsteinsson

                                    Ingibjörg Daníelsdóttir

                                    Finnbogi Leifsson

Áheyrnarfulltrúi:            Jóhannes Stefánsson

Sveitarstjóri:                 Páll S. Brynjarsson

Fjármálastjóri:               Linda Björk Pálsdóttir sem ritaði fundargerð

 

 

Eftirfarandi var tekið fyrir:

 

1.         Atvinnumál

Á fundinn kom Guðrún Gísladóttir, forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Vesturlandi, til viðræðna um stöðu atvinnuleitenda í Borgarbyggð og þær úrlausnir sem stofnunin býður upp á til að fjölga fólki á vinnumarkaði.  Guðrún lagði fram ýmsar tölulegar upplýsingar og greindi frá stöðu verkefna á vegum Vinnumálastofnunar.  Byggðarráð samþykkti að fela sveitarstjóra að taka saman minnisblað í framhaldi af heimsókn Guðrúnar sem lagt verði fram á næsta fundi byggðarráðs.  

 

2.         Slitagerð Byggðarsamlags Laugargerðisskóla

Framlögð slitagerð um byggðasamlag Laugargerðisskóla.  Rætt um eignarhlut Borgarbyggðar í fasteignum byggðarsamlagsins.  Slitagerð slitastjórnar vísað til sveitarstjórnar.   

 

3.         Skólaakstur í Borgarnesi

Framlögð gögn um mögulegar breytingar á akstursleið skólabíls í Borgarnesi.  Samþykkt að vísa til fjárhagsáætlunar ársins 2011.

 

4.         Framkvæmdaáætlun 2010

Á fundinn kom Jökull Helgason, forstöðumaður framkvæmdasviðs, og fór yfir stöðu framkvæmdaáætlunar fyrir árið 2010, auk þess sem lagt var fram yfirlit yfir ófrágengna húsgrunna í Borgarnesi.  Samþykkt að fela forstöðumanni framkvæmdasviðs að krefja lóðarhafa um úrbætur og jafnframt samþykkt að vísa umræðu um húsgrunna til umhverfis- og skipulagsnefndar.       

 

5.         Grunnskólinn í Borgarnesi

Framlagt minnisblað skólastjóra vegna búnaðarkaupa fyrir skólann.  Byggðarráð samþykkir fjárveitingu til skólans að fjárhæð kr. 1.500.000  til búnaðarkaupanna og er þeirri fjárhæð vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.     

 

6.         Fjárhagsstaða Borgarbyggðar

Fjármálastjóri fór yfir rekstrarstöðu Borgarbyggðar eftir fyrstu sex mánuði árins.

 

7.         Styrkbeiðni

Framlagt bréf frá NKG (nýsköpunarkeppni grunnskólanna) þar sem óskað er eftir styrk frá Borgarbyggð vegna keppninnar.  Byggðarráð getur ekki orðið við beiðninni. 

 

8.         Hross á eyðijörðum

Framlagt minnisblað frá umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa um hross á eyðijörðum sem er án tilsjónarmanna.  Sveitarstjóra falið í samstarfi við lögmann að kanna réttarstöðu og skyldur sveitarfélagsins og leggja fram tillögu að úrbótum. 

 

9.         Borgarbraut 65a

Framlagt minnisblað sveitarstjóra vegna viðræðna við Lionsklúbbinn í Borgarnesi vegna aðkomu klúbbsins að uppbyggingu hússins.  Byggðarráð samþykkir að leggja tillögu sveitarstjóra fyrir samninganefnd Lionsklúbbsins. 

 

10.       Úrskurður samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins

Framlagður úrskurður samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins vegna kæru Kapals hf. á hendur Borgarbyggðar vegna smölunar búfjár.  Byggðarráð samþykkir að fá álit lögfræðings sveitarfélagsins á úrskurðinum.     

 

11.       Málefni fatlaðra

Rætt um yfirfærslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga.

 

12.       Brunavarnir

Rætt um átak Borgarbyggðar og Búnaðarsamtaka Vesturlands.  Verkefninu er lokið og þakkar sveitarfélagið Búnaðarsamtökunum fyrir samstarfið.

 

13.       Menntaborg ehf.

Sveitarstjóri greindi frá viðræðum sveitarfélagsins við Íslandsbanka.  Byggðarráð felur sveitarstjóra að ljúka samningum við bankann.  

 

 14.      Afréttarmál

Lagt fram álit Inga Tryggvasonar, lögfræðings, um álagningu fjallskila.    

 

 

 

 

15.       Orkuveita Reykjavíkur

Rætt um málefni Orkuveitunnar og stöðu Borgarbyggðar innan fyrirtækisins.      

 

 

 

Fleira ekki gert.

Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.

 

Fundi slitið kl. 12:05.

 



Til baka