Afréttarnefnd Álftaneshrepps, fundur nr. 11
Dags. 26.8.2010
11. Fundur í afréttarnefnd Álftarneshrepps 26 ágúst 2010
Haldinn á Leirulæk. Kl 20:30
Guðrún Sigurðardóttir setti fundinn , allir nefndarmenn mættir.
Byrjaði Guðrún á að leggja fram erindisbréf frá Borgarbyggð, til afréttarnefndar Álftaneshrepps.
Aðalefni fundarins álagning fjallskila.
Til fjallskila eru 2216 kindur sem er fjölgun um 225 frá fyrra ári.
Dagsverkið er metið á 8000.-kr.
Ráðskona verður í fyrstu leit, og er fæðið á 4500.-kr. og sér Borgarbyggð um að innheimta það.
Fengnir verða menn til að sjá um akstur í leitir og einnig til að sjá um eftirleit.
Kaupa þarf hey í fyrstu leit, útikamar þarf í fyrstu Grímsstaðarétt.
Borgarbyggð sér um smölun á Syðri-Hraundalslandi og Hraundalshrauni.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið.
Ásgerður Pálsdóttir
Svanur Pálsson
Guðrún Sigurðardóttir
Til baka