Borgarfjarðarstofa, fundur nr. 3
Dags. 2.9.2010
FUNDARGERÐ
3. fundur stjórnar Borgarfjarðarstofu
Fimmtudaginn 2. september 2010 kom stjórn Borgarfjarðarstofu saman til fundar kl. 16:30 að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.
Mættir voru:
Aðalfulltrúar: Jónína Erna Arnardóttir
Friðrik Aspelund
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir
Sigríður Bjarnadóttir
Jóhannes Stefánsson
Sveitarstjóri: Páll S. Brynjarsson sem ritaði fundargerð
Eftirfarandi var tekið fyrir:
1. Stefnumót 2010
Rætt um stefnumót 2010 og eftirfylgni með þeim tillögum sem þar komu fram. Sveitarstjóra falið að kalla saman forsvarsmenn verkefnisins til fundar.
2. Markaðs- og kynningarmál
Rætt um heimasíðu Borgarbyggðar og hvernig sveitarfélagið geti kynnt starfsemi sína fyrir nýjum nemendum við háskóla í sveitarfélaginu.
Sveitarstjóra falið láta uppfæra efni á heimasíðu, auka möguleika íbúa á því að nýta síðuna til að koma á framfæri ábendingum til sveitarfélagsins og kanna möguleika á því að senda út sveitarstjórnarfundi.
Sveitarstjóra falið að ræða við rektora háskóla í Borgarbyggð um kynningu á sveitarfélaginu fyrir nýnema.
Samþykkt að útlit á öllu kynningarefni á vegum sveitarfélagsins verið samræmt.
3. Mennta- og menningarhúsið í Borgarnesi;
Rætt um kynningu og útleigu á menningarsal Borgarbyggðar í mennta- og menningarhúsinu í Borgarnesi. Stjórn Borgarfjarðarstofu samþykkir að efna til samkeppni um nafn á mennta- og menningarhúsið í Borgarnesi. Einnig samþykkir stjórn að efna til menningarhátíðar í húsinu sem og að óska eftir samstarfi við skóla- og menningarstofnanir í héraði um hátíðina
4. Safnahús Borgarfjarðar;
Á fundinn mætti Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður Safnahúss Borgarfjarðar og kynnti drög að starfsáætlun fyrir árið 2011. Rætt var um starfsmannamál, geymslumál safnanna og brunavarnir í safnahúsi.
Stjórn Borgarfjarðarstofu óskar eftir að framkvæmdasvið geri úttekt á möguleikum þess að nýta fasteignir Borgarbyggðar í Brákarey sem geymslur fyrir söfnin. Jafnframt að framkvæmdasvið leggi fram kostnaðaráætlun um brunavarnir í Safnahúsi. Loks felur stjórn forstöðumanni Safnahúss að skoða möguleika á því að leigja húsnæði í Borgarnesi undir geymslur.
Auk þess voru framlagðar fundargerðir frá starfsmannafundum sem og drög að nýjum samþykktum fyrir héraðsskjalasafnið.
5. Erindi frá bygggðarráði
- Styrkumsókn frá Snorrastofu vegna sýningar um Snorra Sturluson. Samþykkt vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.
- Styrkumsókn frá áhugamönnum um samgöngusögu Borgarness til að smíða líkan af Laxfossi og Akraborg. Samþykkt að vísa umsókninni til Menningarsjóðs Borgarbyggðar.
7. Atvinnumál
Framlagt minnisblað frá fundi byggðarráðs með Guðrúnu Gísladóttur forstöðumanni vinnumálastofnunar á Vesturlandi.
Fleira ekki gert.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl.19.18
Til baka