Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Fyrri mánuður
febrúar 2012
Næsti mánuður
Upptökur
Sveitarstjórn, fundur nr. 83

Dags. 12.1.2012

Ár 2012, fimmtudaginn 12. janúar kom sveitarstjórn Borgarbyggðar saman til fundar kl. 16:00 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Fundinn sátu:

            aðalfulltrúar:              

                                               Ragnar Frank Kristjánsson

                                               Ingibjörg Daníelsdóttir

                                               Björn Bjarki Þorsteinsson

                                               Dagbjartur I. Arilíusson

                                               Jónína Erna Arnardóttir

                                               Sigríður G. Bjarnadóttir

                                               Finnbogi Leifsson

                                               Geirlaug Jóhannsdóttir

                                               Jóhannes F. Stefánsson

            sveitarstjóri:                Páll S. Brynjarsson

 

Fundargerð ritaði Eiríkur Ólafsson.

Forseti setti fund og  var eftirfarandi tekið fyrir:

 

1.         Fundargerð sveitarstjórnar 08.12.         ( 82)

Bjarki lagði fram svohljóðandi tillögu:

„Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkir að falla frá hækkun leikskólagjalda á árinu 2012.  Forsenda þess er að tekjur Borgarbyggðar hækkuðu umfram áætlanir á árinu 2011 og ljóst er að tekjur frá t.a.m. jöfnunarsjóði eru vanáætlaðar fyrir árið 2012 samanber tilkynningar frá sjóðnum.”

Tillagan var samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðin sem er í 11 liðum var framlögð.

 

Til máls tók BBÞ.

 

2.         Fundargerð byggðarráðs 15.12.         ( 214 )

Fundargerðin sem er í 14 liðum var samþykkt samhljóða.

Jóhannes tók ekki þátt í afgreiðslu á 6. lið, deiliskipulag sumarhúsasvæðis í landi Ánabrekku, vegna tengsla við aðila málsins.   

 

Til máls tóku SGB, PSB.

 

Fundargerð byggðarráðs 22.12.                    ( 215 )

Fundargerðin sem er í 9 liðum var samþykkt samhljóða.     

 

Til máls tóku JFS, SGB, PSB, RFK, BBÞ, FL.

 

Fundargerð byggðarráðs 05.01.                    ( 216 )

Ingibjörg lagði fram svohljóðandi tillögu:

”Sveitarstjórn samþykkir að verja kr. 300.000 til stuðnings Lögregluembættinu í Borgarfirði og Dölum til að halda fíkniefnahund.  Vegna hagræðingar í rekstri embættisins hefur komið til tals að skila hundi þeim sem hefur verið lögreglumönnum til aðstoðar við leit á fíkniefnum.  Það er ljóst að sú ráðstöfun kæmi sér mjög illa, ekki hvað síst þegar horft er til þess forvarnargildis sem slíkir hundar hafa haft. 

Því vill sveitarstjórn leggja þetta lóð á vogarskálarnar í þessu máli.”

Tillagan var samþykkt með 8 atkvæðum.  1 (FL) sat hjá.

 

Ingibjörg lagði fram svohljóðandi bókun:

”Sveitarstjórn Borgarbyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði hjá Lögregluembættinu í Borgarfirði og Dölum.  Um árabil hefur legið fyrir að fjárveitingar til embættisins hafa engan veginn verið í samræmi við umfang á starfsemi þess.  Umdæmi lögreglunar í Borgarfirði og Dölum er afar víðfemt, umferðarþungi á þjóðvegi 1 og öðrum vegum í umdæminu mikill og dulin búseta vegna háskóla og sumarhúsa sennilega hvergi meiri.

Það er ólíðandi að niðurskurður á fjárveitingum til embættisins skuli leiða til þess að nú þurfi að fækka lögregluþjónum í umdæminu.  Því skorar sveitarstjórn á innanríkisráðuneytið að endurskoða ákvörðun um lækkun á fjárveitingum til embættisins.  Jafnframt óskar sveitarstjórn eftir fundi með innanríkisráðherra um málið.”

Bókunin var samþykkt samhljóða.

 

Fundargerðin sem er í 15 liðum var samþykkt samhljóða.     

 

Til máls tóku ID, GJ, PSB, JEA.

 

3.         Fundargerð velferðarnefndar 04.01.        (  17 )

Fundargerðin sem er í 7  liðum var samþykkt samhljóða.     

 

4.         Fundargerð tómstundanefndar 09.01.      ( 19 )

Sigríður lagði fram tillögu um breytingu á gjaldskrá íþróttamiðstöðva.

Samþykkt var að vísa tillögu Sigríðar og 5. lið fundargerðarinnar til byggðarráðs.

 

Fundargerðin sem er í 6 liðum var að öðru leiti samþykkt samhljóða.     

 

Til máls tóku SGB, PSB, JEA.

 

5.         Fundargerð stjórnar fólkvangsins Einkunna 09.01.        (  36 )

Fundargerðin sem er í 7 liðum var samþykkt samhljóða.   

 

6.         Fundargerð afréttarnefndar Þverárréttar 13.11.     (  21 )

Fundargerðin sem er í 2 liðum var samþykkt samhljóða.   

 

7.         Fundargerð afréttarnefndar Borgarhrepps, Stafholtstungna og

Norðurárdals vestan Norðurár  04.11.                              ( 19 )

Fundargerðin sem er í 2   liðum var samþykkt samhljóða. 

 

8.         Þriggja ára áætlun sveitarsjóðs og undirfyrirtækja 2013 – 2015 (fyrri umræða)  

Lögð var fram til fyrri umræðu tillaga að þriggja ára áætlun sveitarsjóðs og undirfyrirtæjka fyrir árin 2013 – 2015.    

Sveitarstjóri kynnti  tillöguna.

 

Geirlaug lagði fram greinargerð minnihluta um breytingar á áherslum í áætluninni.

 

Bjarki lagði fram svohljóðandi bókun:

„Sú þriggja ára áætlun sem hér er lögð fram er í þeim anda sem unnið hefur verið út frá undanfarið, lögð er áhersla á að standa vörð um þá þjónustu sem er í Borgarbyggð og unnið er markvisst að lækkun skulda. Rætt hefur verið um sölu eigna í sveitarstjórn undanfarið og liggja nú fyrir samþykktir um sölu fasteigna og jarðar.  Þeir áherslupunktar sem minnihlutinn nefnir í greinargerð sinni með þriggja ára áætlun eru ekki allir nýir af nálinni, margir hverjir hafa verið og eru til umræðu í sveitarstjórn og eru til skoðunar í nefndum.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs lýsir nú sem fyrr yfir vilja til samstarfs við fulltrúa minnihlutans í sveitarstjórn Borgarbyggðar og á það einnig við um frekari vinnu við þriggja ára áætlun nú á milli umræðna.”

 

Samþykkt samhljóða að vísa tillögunni ásamt greinargerð minnihluta til síðari umræðu.

 

Til máls tóku PSB, GJ, BBÞ.

 

 

Fleira ekki gert.

Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.

 

Fundi slitið kl.17,55.



Til baka