Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 217

Dags. 19.1.2012

Fimmtudaginn 19. janúar  2012 kom byggðarráð Borgarbyggðar saman til fundar  kl. 8:00 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Mætt voru:

         Aðalfulltrúar:             Bjarki Þorsteinsson

                                         Ingibjörg Daníelsdóttir

                                         Geirlaug Jóhannsdóttir

        Áheyrnarfulltrúi:         Sigríður G. Bjarnadóttir

        Sveitarstjóri:              Páll S. Brynjarsson

        Skrifstofustjóri:          Eiríkur Ólafsson sem ritaði fundargerð

 

Eftirfarandi var tekið fyrir:

 

1.         Brákarbraut 25

Framlagt minnisblað frá fjármálafulltrúa um fasteignina að Brákarbraut 25.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að láta ganga frá samningum við alla aðila sem hafa aðstöðu í húsinu.

 

2.         Orkuveita Reykjavíkur

Sveitarstjóri kynnti umræður og gögn frá fundum vinnuhóps um aðkomu Borgarbyggðar að aðgerðaráætlun Orkuveitu Reykjavíkur.

 

3.         Menntaskóli Borgarfjarðar

Framlögð greinargerð frá KPMG um áhrif þess á reikningsskil Borgarbyggðar ef skólinn verður hluti af samstæðu sveitarfélagsins. 

 

4.         Félagsheimili

Framlagðar fundargerðir frá fundum húsnefnda Valfells og Lyngbrekku þar sem m.a. var rætt um nýja gjaldskrá fyrir félagsheimilin.  

Byggðarráð samþykkti að félagsheimilin skuli miða við þá gjaldskrá sem Borgarfjarðarstofa lagði til að yrði notuð.

Samþykkt var að fela Borgarfjarðarstofu að ræða við húsnefnd Lyngbrekku um viðhald hússins.

 

5.         Gjaldskrá íþróttamiðstöðva

Framlögð tillaga tómstundanefndar að heildargjaldskrá íþróttamiðstöðva í Borgarbyggð, auk þess sem lögð var fram breytingartillaga frá Sigríði Bjarnadóttur við tillögu tómstundanefndar.

Byggðarráð samþykkti tillögu tómstundanefndar með áorðnum breytingum.

Geirlaug sat hjá við atkvæðagreiðslu.  Gjaldskráin tekur gildi 01.02.'12.

 

6.         Búfjáreftirlit

Framlögð fundargerð frá 9. fundi Búfjáreftirlitsnefndar fyrir svæði 5.

 

7.         Þriggja ára áætlun

Rætt um þriggja ára áætlun Borgarbyggðar 2013 - 2015.

 

8.         Ungmennaráð

Framlögð tillaga að endurskoðuðu erindisbréfi ungmennaráðs Borgarbyggðar. 

Gerð var breyting á tillögunni og hún þannig samþykkt.

Samþykkt að halda sameiginlegan fund ungmennaráðs og sveitarstjórnar 06. mars n.k.

 

9.         Könnun á kjörum kynjanna hjá Borgarbyggð

Framlögð könnun á kjörum kynjanna hjá Borgarbyggð sem unnin var af félagsmálastjóra í október 2011. 

 

10.       Landgræðsla ríkisins

Framlagt erindi frá Landgræðslu ríkisins þar sem óskað er eftir þátttöku Borgarbyggðar í verkefninu  „Bændur græða landið.“

Vísað til umsagnar landbúnaðarnefndar.

 

11.       Vatnsveitur í Borgarbyggð

Framlagt minnisblað sveitarstjóra um vatnsveitur í Borgarbyggð.

 

12.       Skýrsla slökkviliðsstjóra

Framlögð skýrsla slökkviliðsstjóra Slökkviliðs Borgarbyggðar um starfsemina á árinu 2011.

Byggðarráð þakkar skýrsluna.

 

13.       Framlögð mál

a.         Fundargerð frá 94. fundi í stjórn Faxaflóahafna.

b.         Bréf frá Umferðarstofu vegna snjómoksturs

 

Fleira ekki gert.

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl. 11,10.  

Til baka