Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður
Byggðarráð Borgarbyggðar, fundur nr. 219

Dags. 26.1.2012

Fimmtudaginn 26. janúar  2012 kom byggðarráð Borgarbyggðar saman til fundar  kl. 8:00 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.

 

Mætt voru:

            Aðalfulltrúar:              Ingibjörg Daníelsdóttir

                                             Geirlaug Jóhannsdóttir

            Varafulltrúi:                Dagbjartur I. Arilíusson

            Áheyrnarfulltrúi:         Sigríður G. Bjarnadóttir

            Sveitarstjóri:              Páll S. Brynjarsson

            Skrifstofustjóri:          Eiríkur Ólafsson sem ritaði fundargerð

 

Eftirfarandi var tekið fyrir:

 

1.         Starfsmannamál

Rætt um laun starfsmanna hjá Borgarbyggð og lagðar fram upplýsingar sem borist hafa um launakjör starfsmanna hjá öðrum sveitarfélögum.

 

2.         Orkuveita Reykjavíkur

Rætt um lánveitingu Borgarbyggðar til Orkuveitu Reykjavíkur sem er hluti að aðgerðaráætlun fyrirtækisins. 

Samþykkt að ræða við fulltrúa Reykjavíkurborgar um málið.

 

3.         Málefni fatlaðra

Framlögð fundargerð frá fundi sveitarstjórnarmanna á Vesturlandi sem haldinn var 18.01.'12 um starfsemi þjónustusvæðis Vesturlands um málefni fatlaðra og fjárhagsáætlun þjónustusvæðisins fyrir árið 2012.

 

4.         Erindi frá Ólöfu Davíðsdóttur

Framlögð kostnaðaráætlun frá Ólöfu Davíðsdóttur vegna aðstöðu og vinnu við tómstundastarf fyrir fatlaða einstaklinga, eldri borgara og fleiri.

Samþykkt að vísa erindinu til umsagnar velferðarnefndar.

 

5.         Erindi frá Rarik

Framlagt bréf dagsett 20.01. 2012 frá Rarik þar sem fyrirtækið óskar eftir viðræðum um yfirtöku sveitarfélagsins á götulýsingarkerfinu í Borgarbyggð.

Samþykkt að fela sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið.   

 

6.         Skólahreysti

Framlagt erindi frá Icefitness ehf. þar sem óskað er eftir fjárstuðningi við Skólahreysti 2012.

Samþykkt að styrkja verkefnið um kr. 50.000,-

 

7.         Þriggja ára áætlun

Rætt um þriggja ára áætlun Borgarbyggðar 2013 - 2015.

 

8.         Öryggismál á vinnustöðum Borgarbyggðar

Á fundinn mætti Jökull Helgason forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs til viðræðna um gerð áhættumats/öryggisáætlunar á vinnustöðum Borgarbyggðar.

Samþykkt að fela Jökli að afla frekari upplýsinga fyrir næsta fund byggðarráðs.

 

9.         Viðhald og nýframkvæmdir við kirkjugarða

Rætt um fjárveitingar sveitarfélagsins til viðhalds og nýframkvæmda í kirkjugörðum í Borgarbyggð árið 2012. 

Samþykkt að fela umhverfis- og skipulagssviði að skipta fjárveitingu ársins á milli þeirra verkefna sem sótt hefur verið um.

 

10.       Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi

Framlagt erindi frá Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi dags. 24.01.'12 vegna umsóknar um stuðning úr Framkvæmdasjóði aldraðra, en til stendur að hefja endurbætur á dvalarrýmum á heimilinu.

Byggðarráð staðfesti að fyrirhuguð framkvæmd sé í samræmi við áætlanir um uppbyggingu á þjónustu fyrir aldraða.

 

11.       Nýting lóðar að Fitjum 2

Framlagt minnisblað skrifstofustjóra um lágmarksnýtingu lóðarinnar að Fitjum 2 sem Bílasalan Geisli fékk úthlutað fyrir nokkru.

Samþykkt að óska eftir upplýsingum um sambærileg mál í öðrum sveitarfélögum.

Dagbjartur vék af fundi meðan málið var rætt vegna tengsla við málið.

 

12.       Forðagæslumál

Rætt um forðagæslumál í Borgarbyggð.

 

13.        Fjárhagsstaða Borgarbyggðar

Á fundinn mætti Einar G. Pálsson fjármálafulltrúi og fór yfir fjárhagsstöðu Borgarbyggðar og lagði fram gögn um reksturinn á árinu 2011.

 

14.       Framlögð mál

a.         Fundargerð frá 168. fundi í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur

 

Geirlaug vék af fundi áður en fundargerðin var lesin upp.

 

 

Fleira ekki gert.

 

Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.

Fundi slitið kl.  12,35.

 



Til baka