Fræðslunefnd, fundur nr. 85
Dags. 21.2.2012
FUNDARGERÐ
85. fundar fræðslunefndar
Þriðjudaginn 21. febrúar 2012 kom fræðslunefnd Borgarbyggðar saman til fundar
kl. 16.30 að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.
Mætt voru:
Aðalfulltrúar: Bjarki Þorsteinsson formaður
Geirlaug Jóhannsdóttir
Finnbogi Leifsson
Ulla Pedersen
Svanhildur Svansdóttir
Fræðslustjórar: Ásthildur Magnúsdóttir og Steinunn Baldursdóttir sem ritaði fundargerð.
Fjóla Benediktsdóttir áheyrnarfulltrúi úr Skorradal.
Eftirfarandi var tekið fyrir:
MÁLEFNI TÓNLISTARSKÓLA
Á fundinn mættu Theodóra Þorsteinsdóttir skólastjóri og Hulda Hrönn Sigurðardóttir fyrir hönd foreldra.
1. Biðlistar
Núna eru samtals 20 nemendur á biðlista á ýmis hljóðfæri, einnig eru nokkrir sem vilja komast í fullt nám. Fulltrúi foreldra lýsti áhyggjum af fjölgun á biðlista og þeim niðurskurði sem Tónlistarskólinn hefur orðið fyrir. Reynt er að taka við þeim nemendum sem sækja um á réttum tíma, hinir fara á biðlista. Innritun nýnema verður núna í maí en sem hingað til hefur verið að hausti, það verður auglýst í fréttabréfi sem fyrr inná öll heimili í Borgarbyggð.
2. Gjaldskrá
Rætt um gjaldskrá, verið er að taka saman upplýsingar um gjaldskrár í öðrum sveitarfélögum og taka aftur fyrir á næsta fræðslunefndarfundi.
3. Starfsáætlun 2012
Áætlunin lögð fram. Nokkur fækkun hefur orðið á nemendafjölda frá haustönn m.a. vegna minni yfirvinnu kennara.
Áheyrnarfulltrúar tónlistarskólans viku af fundi.
MÁLEFNI LEIKSKÓLA
Á fundinn mættu Guðbjörg Hjaltadóttir fyrir hönd leikskólastjóra, Elín Friðriksdóttir fulltrúi starfsmanna og Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir fulltrúi foreldra.
4. Starfshópur um Hnoðraból
Vinna starfshópsins kynnt, rætt um kosti og galla. Fræðslustjóra falið að senda umsögn til byggðarráðs um stöðu mála.
5. Úrræði fyrir elsta árgang leikskólabarna úr Klettaborg og Uglukletti í ágúst
Samþykkt að halda áfram að skoða þennan möguleika og kanna hugsanlegan fjölda barna.
6. Undanþágubeiðnir í leikskóla
Lagðar fram þrjár beiðnir um undanþágu frá aldursmörkum í leikskólann Andabæ. Samþykkt að heimila leikskólastjóra að bjóða börnunum leikskólavist frá og með 16 mánaða aldri, enda rúmist það innan fjárhagsáætlunar ársins.
Fræðslunefnd beinir þeim tilmælum til velferðarnefndar að auglýsa eftir dagforeldrum í sveitarfélaginu.
7. Erindi frá foreldrafélagi Andabæjar vegna morgunverðar
Samþykkt að veita leikskólunum svigrúm við aðlögun á breytingum á morgunmat.
8. Starfsáætlanir 2012
Starfsáætlanir lagðar fram, fræðslunefnd þakkar framlagðar áætlanir.
Á fundinn mættu Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri, Sæbjörg Kristmannsdóttir fulltrúi kennara og Jóhanna B. Þorvaldsdóttir fulltrúi foreldra boðaði forföll.
Sameiginlegir liðir
9. Innleiðing nýrrar aðalnámskrár leik- og grunnskóla
Ásthildur kynnti að innleiða eigi skólanámskrárnar fyrir haust 2013. Skapa þarf svigrúm innan hverrar skólastofnunar til að útbúa og endurskoða skólanámskrár. Skólastjórnendur og fræðslustjóri kanni með sameiginlegt námskeið og upphaf þessarar vinnu.
10. Þjónustukönnun Capacent
Rætt um að gera skoðanakannanir innan leik- og grunnskóla Borgarbyggðar, eins fyrir hvort skólastig. Skólastjórnendur komi með tillögur að 10-15 spurningum sem fyrstu skref, markmiðið yrði að fá nánari upplýsingar um stöðu skólamála í sveitarfélaginu.
Jafnframt óskar fræðslunefnd eftir að fá innra mat og/eða kannanir frá hverri skólastofnun, skólastjórnendur kynni hver fyrir sína stofnun á næsta fundi fræðslunefndar.
Áheyrnarfulltrúar leikskólans viku af fundi.
MÁLEFNI GRUNNSKÓLA
11. Skýrsla húsnæðishóps
Skýrslan lögð fram og farið yfir helstu niðurstöður, vísað til byggðarráðs með áorðnum breytingum.
12. Skólaakstur í Borgarbyggð
Í ljósi þess að endurskoða þarf ákveðnar akstursleiðir, regluverk og möguleika á akstri fyrir Menntaskóla Borgarfjarðar leggur fræðslunefnd til við byggðaráð að gerð verði verðkönnun á skólaakstri í Borgarbyggð.
F.L. studdi ekki tillöguna.
13. Öryggi í skólaakstri
Ásthildur kynnti könnun meðal skólabílstjóra um öryggismál í skólaakstri.
14. Námsver
Ásthildur kynnti tillögu að námsveri við Grunnskólann í Borgarnesi, áætlað fyrir börn með einhverfu og aðrar þroskaraskanir. Fræðslunefnd leggur til að stefnt verði að opnun námsvers haustið 2012, fræðslustjóra falið að útbúa umsögn til byggðarráðs.
15. Starfsáætlanir 2012
Starfsáætlanir lagðar fram, fræðslunefnd þakkar framlagðar áætlanir.
16. Skóladagatal 2012-2013
Framlögð drög af skóladagatölum Grunnskólans í Borgarnesi og Grunnskóla Borgarfjarðar fræðslustjóra falið að kynna drögin fyrir leikskólastjórum.
Fleira ekki gert. Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið klukkan 21.10.
Til baka