Upptökur
Sveitarstjórn, fundur nr. 82
Dags. 8.12.2011
Ár 2011, miðvikudaginn 8. desember kom sveitarstjórn Borgarbyggðar saman til fundar kl. 16:00 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi.
Fundinn sátu:
aðalfulltrúar:
Ragnar Frank Kristjánsson
Ingibjörg Daníelsdóttir
Björn Bjarki Þorsteinsson
Dagbjartur I. Arilíusson
Jónína Erna Arnardóttir
Sigríður G. Bjarnadóttir
Finnbogi Leifsson
Geirlaug Jóhannsdóttir
Jóhannes F. Stefánsson
sveitarstjóri: Páll S. Brynjarsson
Fundargerð ritaði Eiríkur Ólafsson.
Forseti setti fund og óskaði í upphafi eftir afbrigðum frá boðaðri dagskrá að taka 2 fundargerðir á dagskrá og var það samþykkt. Gengið var til dagskrár og var eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð sveitarstjórnar 16.11. ( 81)
Fundargerðin sem er í 11 liðum var framlögð.
2. Fundargerð byggðarráðs 24.11. ( 212 )
Fundargerðin sem er í 21 lið var samþykkt samhljóða.
Fundargerð byggðarráðs 01.12. ( 213 )
Varðandi 5. lið, Orkuveita Reykjavíkur, lagði Bjarki til að sveitarstjóra verði falið að óska eftir fundi með meðeigendum Borgarbyggðar í Orkuveitu Reykjavíkur varðandi málefni veitunnar.
Samþykkt samhljóða.
Varðandi 4. lið, yfirvinna starfsmanna Borgarbyggðar, lagði Geirlaug til að gerður verði samanburður á yfirvinnu starfsmanna Borgarbyggðar og annarra sveitarfélaga.
Bjarki lagði til að samanburðurinn nái um launakjör starfsmanna og var tillagan þannig samþykkt samhljóða.
Fundargerðin sem er í 16 liðum var að öðru leiti samþykkt samhljóða.
Til máls tóku BBÞ, JFS, GJ, PSB, SGB.
3. Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar 05.12. ( 17 )
Varðandi 5. lið, Brákarey, lagði Sigríður til að umhverfis- og skipulagsnefnd og Borgarfjarðarstofa taki fyrir tillögu Neðri-bæjarsamtakanna um þjónustuskilti.
Tillagan var samþykkt.
Fundargerðin sem er í 9 liðum var samþykkt samhljóða.
Til máls tóku RFK, SGB, JFS, JEA, BBÞ.
4. Fundargerð fræðslunefndar 29.11. ( 84 )
Fundargerðin sem er í 7 liðum var samþykkt samhljóða.
Til máls tók BBÞ, JFS, GJ.
5. Fundargerð tómstundanefndar 05.12. ( 18 )
Fundargerðin sem er í 3 liðum var samþykkt samhljóða.
Til máls tóku FL, PSB.
6. Fundargerð stjórnar Borgarfjarðarstofu 01.12. ( 15 )
Fundargerðin sem er í 5 liðum var samþykkt samhljóða.
Til máls tók JEA.
7. Fundargerð landbúnaðarnefndar 24.11. ( 7 )
Fundargerðin sem er í 2 liðum var samþykkt samhljóða.
8. Fundargerð eldriborgararáðs 23.11. ( 11 )
Fundargerðin sem er í 2 liðum var samþykkt samhljóða.
9. Fundargerð velferðarnefndar 07.12. ( 16 )
Samþykkt var að vísa 3. lið, reglur um ferðaþjónustu aldraðra, til byggðarráðs.
Fundargerðin sem er í 8 liðum var að öðru leiti samþykkt samhljóða.
Til máls tóku BBÞ, FL.
10. Fundargerð fjallskilanefndar 18.11. ( 10 )
Samþykkt var að vísa til byggðarráðs seinni hluta 2. liðar, fjárhagsáætlun, sem er um kæru á nýju fasteignamati á afréttarlöndum.
Fundargerðin sem er í 3 liðum var að öðru leiti samþykkt samhljóða.
Til máls tók FL.
11. Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og undirfyrirtækja 2012 (seinni umræða)
Lögð var fram til seinni umræðu tillaga að fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og undirfyrirtækja fyrir árið 2012.
Sveitarstjóri kynnti tillöguna og þeim breytingum sem gerðar hafa verið á henni frá fyrri umræðu.
Í tillögunni er gert ráð fyrir að skatttekjur verði 1.967 milljónir, rekstrarafgangur a-hluta verði 24,9 milljónir, rekstrarafgangur samstæðureiknings verði 1.7 milljón og framkvæmdir og fjárfestingar 207 milljónir.
Lögð var fram tillaga um að álagning fasteignaskatts í Borgarbyggð á árinu 2012 verði:
a-flokkur 0,36%
b-flokkur 1,32%
c-flokkur 1,50%
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. gegn 1 (GJ). 3 (JFS, SGB, FL) sátu hjá.
Lögð var fram tillaga um að lóðaleiga í Borgarbyggð 2012 verði 1,15% af fasteignamati íbúðarhúsalóða og 1,33% af fasteignamati annarra lóða.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. gegn 1 (GJ). 3 (JFS, SGB, FL) sátu hjá.
Lögð var fram tillaga að gjaldskrá fyrir söfnun, förgun, móttöku og flokkun sorps í Borgarbyggð.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. gegn 1 (GJ). 3 (JFS, SGB, FL) sátu hjá.
Lögð var fram tillaga að gjaldskrá fyrir hreinsun og tæmingu rotþróa í Borgarbyggð.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. gegn 1 (GJ). 3 (JFS, SGB, FL) sátu hjá.
Lögð var fram tillaga að gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Álftaneshrepps.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. gegn 1 (GJ). 3 (JFS, SGB, FL) sátu hjá.
Lögð var fram tillaga að gjaldskrá fyrir stofngjald fráveitu í Borgarbyggð.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. gegn 1 (GJ). 3 (JFS, SGB, FL) sátu hjá.
Lögð var fram tillaga að gjaldskrá íþróttamiðstöðva Borgarbyggðar 2012.
Sveitarstjóri kynnti breytingu á tillögunni.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. 4 (JFS, SGB, FL, GJ) sátu hjá.
Samþykkt var að vísa breytingu á aldursskiptingu í gjaldskránni til byggðarráðs.
Lögð var fram gjaldskrá fyrir leikskóla Borgarbyggðar sem gildir frá 01.02.'12.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. gegn 3 (JFS, GJ, SGB). 1 (FL) sat hjá.
Lögð var fram tillaga að gjaldskrá mötuneyta í grunnskólum og lengdri viðveru 2012.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. gegn 2 (GJ, SGB). 2 (JFS, FL) sátu hjá.
Lögð var fram tillaga að skólagjöldum Tónlistarskóla Borgarfjarðar á vorönn 2012.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. 4 (JFS, SGB, FL, GJ) sátu hjá.
Lögð var fram tillaga að skólagjöldum Tónlistarskóla Borgarfjarðar á haustönn 2012.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. 4 (JFS, SGB, FL, GJ) sátu hjá.
Lögð var fram tillaga að gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í þéttbýli Borgarbyggðar árið 2012.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. gegn 1 (GJ). 3 (JFS, SGB, FL) sátu hjá.
Lögð var fram tillaga að gjaldskrá fyrir heimaþjónustu Borgarbyggðar.
Tillagan var samþykkt með 5 atkv. gegn 1 (GJ). 3 (JFS, SGB, FL) sátu hjá.
Geirlaug lagði fram svohljóðandi bókun:
„Sú fjárhagsáætlun sem hér er lögð fram leiðir til enn frekari þjónustuskerðingar á flestum sviðum grunnþjónustu. Má þar til dæmis nefna framlög til félagsþjónustu aldraðra sem lækkar úr 10,6 milljónum í 7,7 milljónir á milli ára. Því til viðbótar ætlar meirihlutinn að stórhækka álögur á íbúa, s.s. með hækkun þjónustugjalda í leikskóla, sem voru með þeim hæstu á landinu fyrir, mötuneytisgjöld og félagslega heimaþjónustu. Atvinnurekendur fá einnig sinn skerf því álagningaprósenta fasteignaskatts á atvinnuhúsæði verður hækkaður skv. tillögu meirihlutans. Því teljum við nú ástæðu til dramatískra upphrópana, með vísan í bókun meirihlutans við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun 2012.
Við undirriðuð höfum ítrekað bent á aðrar leiðir til að ná niður skuldum sveitafélagsins, s.s. sölu eigna og endurskipulagningu á rekstri sveitarfélagsins en þær hugmyndir hafa ekki hlotið brautargengi. Niðurstaðan, eftir marga mánaða vinnu við fjárhagsáætlanagerð, er sú að enn verður aukið við skuldir sveitarfélagsins til að dekka rekstrarhalla og rekstraráætlunin er brúuð með því að hækka álögur á íbúa með gjaldskrárhækkunum.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna hefur enga framtíðarsýn varðandi rekstur og fjármál sveitarfélagsins og skortir alla pólitíska ábyrgð á málum.“
Jóhannes F. Stefánsson (sign)
Finnbogi Leifsson (sign)
Sigríður Guðbj. Bjarnadóttir (sign)
Geirlaug Jóhannsdóttir (sign)
Ingibjörg lagði fram svohljóðandi bókun:
”Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyrir árið 2012 liggur nú fyrir. Áætlunin er lögð fram með tekjuafgangi, gjaldskrárhækkanir eru í lágmarki og halda þær ekki í við verðlagsþróun á aðföngum og launum.Grunnstoðir sveitarfélagsins eru sterkar og ekki eru lagðar til breytingar á þeim. Á árinu 2011 var samþykkt aukning á þjónustu í fræðslumálum s.s. í sérkennslu og sérfræðiþjónustu. Framlegð frá rekstri er 16.4% sem sýnir að reksturinn er í ásættanlegu horfi og veltufé frá rekstri er 10% og stendur undir afborgunum langtímalána. Samkvæmt áætlun er gert ráð fyrir að skuldir sveitarsjóðs lækki um 136 milljónir, en skuldir fyrirtækja sveitarfélagsins hækka um 208 milljónir vegna fjármögunar á byggingu hjúkrunarálmu við Dvalarhemili aldraðra í Borgarnesi, en sá kostnaður verður endurgreiddur af ríkinu í gegnum húsaleigu.
Lagðir verða fjármunir til Háskólans á Bifröst til þess að styrkja stöðu hans og starfsemi í héraðinu. Lokið verður við byggingu nýrrar álmu við Dvalarheimilið en framkvæmdin ásamt kaupum á Mennta - og menningarhúsinu Hjálmakletti eru stærstu og fjárfrekustu framkvæmdir sveitarfélagsins um þessar mundir. Framkvæmdir við nýju hjúkrunarálmuna hafa verið mikilvægar fyrir byggingariðnaðinn í sveitarfélaginu á samdráttartímum.Það er ljóst að þessar stóru framkvæmdir sem ráðist hefur verið í efla velferð ungra sem aldinna íbúa Borgarbyggðar og gera sveitarfélagið ákjósanlegan vettvang fyrir fólk á öllum aldri.
Að lokum vilja undirrituð þakka starfsmönnum Borgarbyggðar fyrir þá miklu vinnu sem liggur í framlagðri fjárhagsáætlun, þar sem búið er að raða öllum púslum á sinn stað svo heildarmyndin verði sýnileg og þjónustustig helst áfram gott. Einnig þökkum við sveitarstjórn allri fyrir gott samstarf.“
Ingibjörg Daníelsdóttir (sign)
Jónína E. Arnardóttir (sign)
Dagbjartur Arilíusson (sign)
Björn Bjarki Þorsteinsson (sign)
Ragnar Frank Kristjánsson (sign)
Fjárhagsáætlunin í heild var samþykkt með 5 atkv. 4 (GJ, JFS, SGB, FL) sátu hjá.
Til máls tóku allir fundarmenn.
Fleira ekki gert.
Fundargerðin upplesin og samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl.19,15.
Til baka