Velferðarnefnd, fundur nr. 17
Dags. 4.1.2012
Fundargerð
17. fundur Velferðarnefndar Borgarbyggðar var haldinn miðvikudaginn 4. janúar, kl. 16.00 í Ráðhúsi Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, Borgarnesi.
Mættir: Friðrik Aspelund, Hulda Hrönn Sigurðardóttir, Inga Margrét Skúladóttir, Anna María Sverrisdóttir og Guðbjörg Sólveig Sigurðardóttir ( varamaður).
Auk þess sat fundinn Hjördís Hjartardóttir félagsmálastjóri sem ritaði fundargerð.
1. Jafnréttismál
Borist hafa jafnréttisáætlanir fyrir grunnskólana. Félagsmálastjóra falið að kalla eftir jafnréttisáætlunum annarra stofnana sveitarfélagsins, íþróttahúsa, félagsmiðstöðva, safnahúss, leikskóla.
2. Upphæð grunnupphæðar í reglum um fjárhagsaðstoð. Nefndin ákveður að hækkunin verði skv. hækkun á vísitölu neysluverðs, eða 5%.
3. Umsókn um fjárhagsaðstoð. Sjá trúnaðarbók.
4. Umsókn um fjárhagsaðstoð. Sjá trúnaðarbók.
5. Umsókn um fjárhagsaðstoð. Sjá trúnaðarbók.
6. Umsókn um fjárhagsaðstoð. Sjá trúnaðarbók.
7. Lagðar fram afgreiðslur starfsmanna frá síðasta fundi.
Fundi slitið kl. 17:45
Til baka