Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Upplýsingar um Borgarbyggð

 

Á svæðinu er fjölbreytt mannlíf og atvinnulíf. Þetta er landbúnaðarhérað, en þar blómstrar einnig menntun og menning með miklum ágætum. Tveir háskólar eru á svæðinu, Háskólinn á Bifröst og Landbúnaðarháskóli Íslands sem er með aðalstarfsstöð sína á Hvanneyri. Menntaskóli Borgarfjarðar er í Borgarnesi og þar er boðið upp á fjórar brautir: starfsbraut, almenna braut, félagafræðabraut og náttúrufræðibraut. Tvær síðastnefndu brautirnar eru til stúdentsprófs.  

 

Innan Borgarbyggðar eru starfandi tveir grunnskólar: Grunnskólinn í Borgarnesi og Grunnskóli Borgarfjarðar. Grunnskóli Borgarfjarðar er með þrjár starfstöðvar, á Kleppjárnsreykjum, Varmalandi og á Hvanneyri. Leikskólar starfa einnig víða um svæðið.

 

Fjölbreytt tónlistarlíf er á svæðinu og má þar fyrst nefna starfsemi Tónlistarskóla Borgarfjarðar og Tónlistarfélags Borgarfjarðar.

 

Margir kórar, minni sönghópar og hljómsveitir eru starfandi í Borgarbyggð og má sem dæmi nefna eftirfarandi: Freyjukórinn, Samkór Mýramanna, Karlakórinn Söngbræður, Kammerkór Vesturlands og kirkjukóra. Ennfremur hljómsveitir eins og Festival og fleiri.

 

Ýmsir klúbbar og félög eru starfandi á svæðinu og má þar nefna starfsemi kvenfélaga, Lionsklúbba, Kiwanis- og Rotaryklúbba o.fl.

 

Leiklist blómstrar undir merkjum ungmennafélaganna og hafa leiksýningar verið færðar upp í Logalandi í Reykholtsdal, Brún í Bæjarsveit og Lyngbrekku á Mýrum svo nokkuð sé nefnt.

 

Safnastarfsemi er öflug í héraðinu og má þar nefna starfsemi Snorrastofu í Reykholti, Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri, Safnahúss Borgarfjarðar, Landnámssetur í Borgarnesi, Veiðiminjasafn í Ferjukoti og fleira.

 

Einnig má nefna Ullarselið á Hvanneyri, þar sem rammíslenskt handverk er í hávegum haft.

 

Margt fleira mætti hér upp telja og ábendingar um meira efni á þessari síðu mega gjarnan sendast til upplýsingafulltrúa Emblu Guðmundsdóttur netfang. embla@borgarbyggd.is  

 

Nokkrar vefslóðir:

Grunnskólinn í Borgarnesi: www.grunnborg.is

Grunnskóli Borgarfjarðar: www.gbf.is

Umgmennasamband Borgarfjarðar: www.umsb.is

Menntaskóli Borgarfjarðar: www.menntaborg.is

Háskólinn á Bifröst: www.bifrost.is

Landbúnaðarháskóli Íslands: www.lbhi.is

Búnaðarsamtök Vesturlands á Hvanneyri: www.buvest.is

Snorrastofa: www.snorrastofa.is

Safnahús Borgarfjarðar: www.safnahus.is

Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri: www.landbunadarsafn.is

Ullarselið á Hvanneyri: www.ull.is

Landnámssetur í Borgarnesi: www.landnamssetur.is