Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Ráðhús Borgarbyggðar
   Borgarbraut 14
   310 Borgarnes
   Sími 433 7100
   Fax 433 7101
   Kt: 510694-2289
Skrifstofa Reykholti
   320 Reykholt
   Sími 433 7100
   Fax 433 7130
EnglishPolskiDanskDeutsch
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Störf í boði

Hér er að finna auglýsingar um þau störf

sem nú eru laus hjá Borgarbyggð.

 

 

Laus störf hjá Grunnskóla Borgarfjarðar  

Grunnskóli Borgarfjarðar óskar eftir áhugasömu fólki í eftirtalin störf:

Við Kleppjárnsreykjadeild vantar:

· Sérkennara

· Umsjónarkennara á unglingastigi

· Aðstoðarmatráð

· Skólaliða.  Starfið felst í daglegum þrifum á skólahúsnæði, gæslu og fl.

Við Hvanneyrardeild vantar:

Starfsmann í  „Skólasel“.  Starfið felst í að skipuleggja viðveru og vinna  með nemendum í Selinu eftir að skóla lýkur til kl 16.00.

Mikilvægt að umsækjendur hafi góða færni í mannlegum samskiptum og hafi gaman af því að vinna með börnum og ungmennum.

Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri  Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir í síma 430-1504/847-9262. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið:inga@gbf.is   

 

 

Klettaborg auglýsir eftir leikskólakennara

Leikskólinn Klettaborg er 3ja deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða – 6 ára. Megináhersluatriði leikskólans eru samskipti, skapandi starf og nám án aðgreiningar. Leikskólinn Klettaborg vinnur að innleiðingu leikskólalæsis og er frumkvöðla leikskóli í heilsueflingu.

Um er að ræða 93,75 % stöðu, út næsta skólaár.

Umsækjendur þurfa að hafa lokið námi leikskólakennara eða hafa aðra sambærilega uppeldismenntun. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.

Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir:

·         jákvæðni

·         færni í mannlegum samskiptum

·         frumkvæði

·         sjálfstæði

·         skipulögðum vinnubrögðum

Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur.

Umsóknarfrestur er til 29. maí n.k. og þurfa umsóknir að berast til leikskólastjóra. Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Hjaltadóttir leikskólastjóri í síma 437-1425 eða  á netfanginu gudbjorg@borgarbyggd.is